|
Vaxandi er kertagerð sem sérhæfir sig í handgerðum kertum, námskeiðahaldi og sölu á kertum, efni og áhöldum til kertagerðar.
Verkstæði Vaxandi er opið virka daga e.h. frá kl. 4-6
Velkomin á verkstæðið, sjón er sögu ríkari.
Við bjóðum einnig kertanámskeið og kertakvöld fyrir hópa.
Skráning er í síma 552 6062 og 898 6202. Einnig er hægt að skrá sig með tölvupósti hér vaxandi@vaxandi.is
Upplýsingar um byrjendanámskeið eru hér
Upplýsingar um kertakvöldin eru hér.
Ef erfitt reynist að finna verkstæðið er best að koma eftir Ægissíðu sem síðan breytist í Nesveg. Skömmu eftir að komið er yfir bæjarmörkin á Seltjarnarnes erum við í hvítu húsi á horni Nesvegar og Tjarnarstígs.
Fermingarkerti steypt að óskum hvers og eins, getum blandað nánast alla liti, margar stærðir og form.
Klæðskerasniðin þjónusta.
Brúðkaupskerti með nöfnum brúðhjóna.
Erum með mikið úrval af fallegum kertum fyrir brúðkaup. Einnig skírnarkerti og fermingarkerti.
Við erum með opið eftir samkomulagi. Best er að hringja í síma 552 6062 eða 898 6202 til að athuga hvort einhver er á verkstæðinu.
Vefsíðan er í vinnslu og ætlunin er bæta hana mikið á næstu dögum og vikum. Fyrirspurnir og hugmyndir varðandi síðuna og Vaxandi má senda á netfangið okkar vaxandi@vaxandi.is
|